Varðveisla kristinnar trúar aldanna, og ávaxta hennar

Við skulum vinna að því að varðveita hina kristnu kærleikans trú aldanna og ávexti hennar, eins og gert hefur verið öld af öld, annars væri kirkjan ekki til í dag, og er ekki síður nauðsynlegt í dag, í skeytingarleysi nútímans. Það er einmitt hin gamla og góða kærleikstrú aldanna, grundvölluð á bjargi aldanna, koningi konunganna, konungi kærleikans, Jesú Kristi. Meðal ávaxtanna er, að sjúkir hafa notið líknar, nær sem fjær. Og hér kemur kristniboðsskipunin skýrt inn í, í beinu framhaldi, að kristna allar þjóðir og gjöra alla að lærisveinum Jesú Krists. Órofa samhengi er milli kristniboðsins, og kristilegrar hjálparstarfsemi, nær sem fjær. Vinnum að því að svo verði áfram, gegn miskunnarleysi heimsins, sem þrengir mjög að þessari kristnu kærleikstrú aldanna og þeim ávöxtum, sem af henni af leitt, og þá ekki síst þeirri líknsemi, sem varðar umönnun sjúkra og björgun mannslífa. Órofa samhengi er milli eilífrar sáluhjalpar mannsins, björgunar mannslífa og umönnunar sjúkra. Líknarþjónusta til handa þeim sjúku, er einn þessara ávaxta, en hún verður að byggjast á þeim gildum, sem mölur og ryð fær ekki eytt, þeirri kærleikstrú aldanna, er varðar umönnun sjúkra og björgun mannslífa, grundvallað á lækninum góða, Jesú Kristi, en ekki þeim gildum mammons og auðæfaoflætis, sem nú þegar hefur valdið mannfélagi okkar sem og öðrum mannfélögum, stórskaða, eins nefnt var hér á undan. Vinnum að því að kristin kærleikstrú blómstri, en ekki botnlaus heimshyggja heiðindómsins og auðæfaoflætisins.

Einn af ávöxtum kristinnar kærleikstrúar er, að sjúkir og aldraðir hafa notið umönnunar og líknar, og björgunrar, nær sem fjær. Ein fegurstu dæmin sjáum við ekki síst hjá mannvininum og kristniboðslækninum Albert Schweitzer, sem reisti sjúkrahús í Mið-Afríku og starfaði þar sem kristniboðslæknir í rúma hálfa öld; sama er að segja um Móður Theresu, að ógeymdu líknarstarfi Kaþólsku systranna, nær sem fjær, sem m.a. reistu hér sjúkrahús í upphafi síðusta aldar sem og Hringssytrunum, sem enn þann dag í dag vinna að varðveislu og uppbyggingu barnaspítala. Og allt það óeigingjarna og vanmetna starf, sem heilbrigðisstéttirnar vinna nú í dag, þ.m.t. störf björgunarfólks, slökkviliðs- og sjúkraflutningamannsins, lögreglumannsins, bráðaliðins, og önnur störf ummönnunar, uppeldis, og sálgæslu, starf prestsins, kristniboðans og kennarans, og svo má lengi halda áfram að telja; í raun nær sem fjær; hér er m.a. um að ræða þau gildi kristins og siðaðs mannféls, sem mölur og ryð fær ekki eytt. Nú er þessum ávöxtum sérstaklega ógnað, í afkristnun og afsiðun mannfélagsins í dag, sem veður fram með guðleysið og siðblinduna eina að vopni; ekki bara á Íslandi, heldur um víða veröld, vegna þess, að byggt hefur verið allt of mikið á sandi heimshyggjunnar, í stað hinnar kristnu kærleikstrúar aldanna.   Hér má heldur ekki gleyma ómetnlegu kristniboðs- og hjálparstarfi Hjálpræðishersins, Samhjálpar o.s.frv.

Ef bágur efnashagur hefði ráðið ferðinni varðandi fyrrnefnd líknarstörf, og tíðarandinn ráðið ferðinni, - en veraldleg fátækt var þá meiri en nú, andstætt því er varðar hina andlegu fátækt, - hefði ekkert orðið af þeim; það hefði ekki svarað kostnaði, miðað við tíðarandann í dag. Grundvallarspurningin er því þessi: Ætlar mannfélagið að byggja á sandi tíðarandns og siðblindu hans, eða byggja á bjargi aldanna, með náð, líkn og miskunn Drottins að leiðarljósi, í varðveislu og uppbyggingu kristinnar kærleikstrúar aldanna, þar sem hvert mannslíf sem og eilíf sáluhjálp þess, þar sem þeim fjársjóði er safnað, sem mölur og ryð fær aldrei grandað, er tekið fram yfir forgengilegan auð, sem mölur og ryð fær eytt. 

Og gleymum hér ekki hinu óeigngjarna- og vanmetna starfi sjómannssins, sem hefur ekki síst lagt björg í bú mannfélagsins.  Það eru kaldar kveðjur, sem sjómenn og fjölskyldur þeirra sérstaklega fá frá stjórnvöldum, þar sem segja á upp að minnsta kosti þremur þyrluflugmönnum Landhelgisgæslunnar, og kemur hér enn frekar í ljós skeytingarleysi tíðarandans, og þá ekki heldur síst gagnvart björgunarstörfum.

Það að biðja fyrir hinum sjúka, og að hann njóti líknar, umönnunar og björgunar, nær sem fjær, er sitt hvor greinin á sama vínviði þess alkærleika, sem Jesús Kristur er, konungi konunganna, konungi kærleikans, Drottins vors og Frelsara, sem gaf okkur öllum líf sitt, fæddist hér á jörðu niðri á hinum fyrstu jólum, frelsaði og læknaði sjúka, og dó á krossi vegna okkar synda og misgjörða, og fullnaði sigur sinn yfir dauðanum, með upprisu sinni. Myndist gjá milli greinanna, er voðinn vís, eins og komið hefur á daginn. Nákvæmlega sama gildir varðandi fangann sem og aðra þá, sem í nauðum eru staddir, á einn eða annan hátt, andlega sem efnislega. 

Í ár eru liðin 110 ár frá stofnun KFUM. og KFUK. Á þeim tímamótum, langar mig ekki síst að minnast mannvinarins og æskulýðsleiðtogans Bjarna Eyjólfssonar, sem var einn af brautryðjendum þessa kristilega kærleiksstarfs hér á landi. Hann sýndi það í verki, að hann var lifandi farvegur frelsandi og líknandi náðar Guðs í Kristi Jesú, einkum ungdómnum, með bænalífið að leiðarljósi, þess lykils að óendlanlegri náð og miskunn Drottins í Kristi Jesú. Bjarni Eyjólfsson er eitt fegursta dæmi hins sanna lærisveins Drottins Jesú Krists, sem gefur Drottni Jesú alla dýrðina. Hann er fögur fyrirmynd hins einlægna, sannkristna manns, sem gaf Kristi Jesú allt sitt líf, öðrum til frelsunar og blessunar. Blessuð sé minning hans.

Opnum hjörtu vor fyrir Jesú Kristi, og meðtökum Hans Heilaga Anda. Allir eru fyrirhugaðir til eilífrar sálauhjálpar og eilífs lífs í Kristi Jesú. Þá munum við að lokum hljóta þann dýrðarsveig á himnum, sem aldrei mun dvína, og dvelja um eilífð hjá Honum, sem gaf líf sitt til lausnargjalds, svo við öll mættum eignast eilíft líf, og lifa jóla- og páskagleði þá, sem tekur aldrei enda.  Amen.

Ólafur Þórisson, cand. theol.  Höfundur hefur embættispróf í guðfræði frá HÍ., og hefur rétt til embættisgengis til prestsþjónustu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Þórisson

Höfundur

Ólafur Þórisson
Ólafur Þórisson
Guðfræðikandídat

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband